Eitt af markmiðum Orkuveitunnar um árabil er að ungt fólk sjái tækifæri í tækni, iðn- og verkgreinum þegar kemur að náms- og starfsvali. Í orku- og veitugeiranum hallar því miður enn á konur í þessum greinum. Því höfum við metnað til að breyta og skapa vettvang til að kynna þau fjölbreyttu störf sem geirinn býður upp á.
Í vísindamiðlun Elliðaárstöðvar er lögð mikil áhersla á að gera tækni-, iðn- og verkgreinum hátt undir höfði fyrir sem fjölbreyttastan hóp nemenda.
Á síðasta ári komu um 4100 grunnskólanemar í heimsókn í Elliðárstöð til að fá fræðslu um vísindi, orku, nýsköpun og umhverfismál. Einnig hefur um árabil verið boðið upp á valáfangann Iðnir og tækni á unglingastigi fyrir Árbæjarskóla og Réttarholtsskóla.
Í samstarfi við Háskólann í Reykjavík tók Orkuveitan í fyrsta sinn þátt í fræðsluviðburðinum; Stelpur, stálp og tækni og buðum 120 nemendum í 9. bekk í heimsókn þar sem þau fengu að spreyta sig á raunbærum verkefnum í höfuðstöðum Orkuveitunnar á Bæjarhálsi og í Elliðaárstöð. Orkuveitan, Veitur, Ljósleiðarinn, ON, Carbfix og Jarðhitasýningin lögðu metnað í að bjóða upp á fjölbreytt viðfangsefni með það að markmiði að nemendur skynji þá breidd sem störf í orku- og veitugeiranum bjóða upp á.
Meðal annars var boðið upp á örnámskeið í rafsuðu, heimsókn í stjórnstöð, kynning á starfssemi vatnsveitu. Einnig fengu þau að splæsa saman ljósleiðara, fræðslu um niðurdælingu koldíoxíðs og nýtingu jarðvarma ásamt því að kynntast störfum vísindafólks með mælingum og tilraunum.
Við vitum að hlutverk öflugra fyrirmynda skiptir miklu máli í náms- og starfsvali ungmenna. Orkuveitan býr svo vel að hafa í sínum ranni fjölbreyttan hóp framúrskarandi fagfólks sem vill gefa af sér til næstu kynslóða og vonandi náðuð að sá fræjum til þeirra með heimsókninni.