Það var fjölmennur hópur helstu sérfræðinga heims á sviði jarðvarmanýtingar sem heimsótti okkur á blíðviðris kvöldi í einstöku umhverfi Elliðaárstöðvar í gær. Sérþekking og áratuga reynsla Íslendinga í leit og nýtingu jarðvarma er eftirsóknarverð og það er tengslanetið líka. Heimsóknin var hluti af dagskrá alþjóðlegu jarðvarmaráðstefnunnar Icelandic Geothermal Conference – IGC sem haldin var í Hörpu í vikunni.
Það eru ekki margir sem vita að Elliðaárdalurinn tengist ekki aðeins rafvæðingu borgarinnar heldur er hann einnig staðsettur á lághitasvæði með allt upp í 80-90°c heitt vatn. Hér í Elliðaárdalnum eru því margar heitavatns borholur sem sjálfur gufuborinn Dofri boraði. Borholur sem sjá höfuðborgarbúum fyrir hluta þess heita vatns sem þau nota dags daglega. Það er því engin tilviljun að Dofri sem olli straumhvörfum í leit að heitu vatni og gufu fékk fasta búsetu hér í Elliðaárstöð og vel við hæfi að skála fyrir framtíðar tækifærum sem felast í þeim lífsgæðum sem jarðvarminn getur veitt okkur á heimsvísu.
Ísland sker sig úr á alþjóðavísu varðandi nýtingu jarðvarma en 99,9% hýbíla höfuðborgarsvæðisins eru hituð upp með heitu vatni. Það var ekki raunin fyrir aðeins þeim 66 árum síðan þegar Dofri hóf að bora eftir heitu vatni og gufu árið 1958. Þá lá svartur olíu- og kolakyndingarreykur yfir borginni og hitaveitan aðeins lítill blettur milli Hringbrautar og Snorrabrautar. Reykur sem við náðum blessunarlega að losa okkur við. Hér er því verðmæt og eftirsóknarverð þekking til staðar og mikil sóknarfæri á heimsvísu en jarðvarminn er lítt þekkt stærð innan orkugeirans erlendis. Ráðstefnur eins og IGC eru því mikilvægur vettvangur til að auka á þekkingu og kynna þennan möguleika í baráttunni gegn loftlagsvánni.