Meistarabúðir hugmyndasmiða er skapandi sumarnámskeið fyrir krakka á aldrinum 10-11 ára sem vilja læra að fá hugmyndir sem geta breytt heiminum. Þar sem námskeiðið fer fram í samstarfi við Elliðaárstöð munu krakkarnir geta sótt innblástur úr umhverfinu sem hægt er að nýta í hugmyndavinnuna.
Krakkarnir læra að búa til hugmyndir með og fyrir náttúruna. En með skapandi hugsun og drífandi hugmyndaflugi er hægt að breyta heiminum til hins betra með sjálfbærni og nýtingu auðlinda að leiðarljósi.
Krakkarnir verða undir handleiðslu hugmyndasmiðanna, Svövu Bjarkar Ólafsdóttur og Ninnu Þórarinsdóttur en þær munu meðal annars veita ýmsan fróðleik um endurnýtingu og orku.
Meistarabúðirnar fara fram í Elliðaárstöð dagana 18.-20. júní.
Hægt er að skrá sig á námskeiðið á heimasíðu Hugmyndasmiða hér.