HönnunarMars er vettvangur lista og viðburða í íslensku samfélagi og markmiðið að bjóða gestum og gangandi að kynnast því hvað er helst á baugi í listum hverju sinni. Elliðaárstöð tók þátt í HönnunarMars fjórða árið í röð, þar sem boðið var upp á fjölbreytta dagskrá fyrir unga jafnt sem aldna þann 28. apríl síðastliðinn. Þemað var undur hugmynda þar sem áhersla var lögð á nýsköpun, hönnunarhugsun og hugmyndaheim barna. Margt var um manninn og gafst gestum meðal annars færi á að skapa nýtt úr endurnýttum efnivið og kynna sér orkuna sem býr inni í veggjum heimilisins.
Elliðaárstöð og Jarðhitasýningin í Hellisheiðarvirkjun sameinuðu krafta sína í gömlu rafstöðinni. Þar var boðið upp á fræðslu um þessa einstöku byggingu sem markaði upphaf rafvæðingar í borginni. Á sama tíma gátu gestir tekið inn einstaka náttúru og kraft Hellisheiðarinnar í gegnum myndbandsverkið Agndofa sem varpað var á veggi rafstöðvarinnar. Heimili Veitna sem áður var stöðvarstjórahúsið opnaði dyr sínar fyrir gestum, en þar er hægt að sjá hvernig við tengjumst lífæðum samfélagsins.
Í nýju viðburðarrými, Turninum, var sýning á raftextílverkum nemenda úr Selásskóla og textílhönnuðarins Emmy Shannon. Verkin voru afrakstur samstarfsverkefnis Elliðaárstöðvar, Selásskóla og Emmy. Í verkefninu fengu nemendur að vinna með gamlan vinnufatnað Orkuveitunnar sem annars hefði verið hent. Í verkefninu lærðu nemendur um rafleiðni og rafrásir og sköpuðu gagnvirk listaverk og nytjahluti ásamt Emmy sem gestir gátu prófað að kveikja og slökkva á. Ef þú vilt prófa þig áfram með raftextíl mælum við með að skoða heimasíðu Emmy þar sem finna má leiðbeiningar um allt sem þarf.
Það var ekki nóg með það heldur lifnuðu hinar ýmsu Orkuverur til lífsins. Á staðnum var hægt að gera tilraun með ljós og leiðni og teikna sína eigin Orkuveru.
Veitingavagn Á Bístró breyttist í tilraunastofu á hjólum þar sem hægt var að gæða sér á næringarríkum smáþörungum sem íslenska hátæknifyrirtækið, VAXA Technologies, hefur að undanförnu verið að sérhæfa sig í að rækta. Fyrirtækið nýtir umfram afurðir Hellisheiðarvirkjunar til ræktunar á smáþörungunum, sannkallað orkuskot þar á ferð.
Nýsköpunarsmiðjan, Öll í bátana, var frumsýnd í samstarfi við Hugmyndasmiði. Í smiðjunni fengu hönnunarsmiðir framtíðarinnar tækifæri til að takast á við áskorun um að búa til farartæki sem getur bæði flotið og knúið sig áfram. Til urðu bátar af öllum stærðum og gerðum sem áttu það sameiginlegt að vera úr efnivið sem annars hefði verið hent.
Það gátu því sannarlega öll fundið eitthvað við sitt hæfi, hvort sem það var að virkja ímyndunaraflið og sköpunarkraftinn eða fræðast um einstaka sögu Elliðaárstöðvar.