Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Vor og vellíðan í Vatnsleikjagarðinum

5. júní 2024

Þrátt fyrir nýstingskulda og rok síðustu daga hefur það ekki komið í veg fyrir heimsóknir skólahópa sem ýmist koma á hjólum, gangandi eða með strætó. Í dag voru það kátir krakkar úr Fossvogskóla og Kársnesskóla sem létu kuldann ekki stoppa sig í að  busla í Vatnsleikjagarðinum og margir eflaust farið votir heim.

Á vordögum rétt fyrir skólaslit er hefð fyrir því að nemendur leggi bækurnar á hilluna og fari á vit ævintýranna út fyrir skólalóðina. Líkt og farfuglar að vori streyma skólahópar í Vatnsleikjagarðinn og hlátrasköll og gusugangur einkenna hljóðvistina í bland við hefðbundnari fuglasöng og nið árinnar.

Það eru ekki margir sem vita að Vatnsleikjagarðurinn er eftirlýking af Elliðaánum. Þá er rennibrautin sjálf Árbæjarstíflan og Elliðaárhólminn er hóllinn sem áin rennur sitt hvoru megin við.

Samkvæmt nýrri könnun Prósents er Elliðaárdalurinn vinsælasti áfangastaðurinn á höfuðborgarsvæðinu til útivistar. Það er ekki að undra miðað við náttúru og fjölbreytta upplifun sem dalurinn hefur upp á að bjóða.

Um að gera að gera sér glaðan dag og kíkja við í Vatnsleikjagarðinn.

Aðrar fréttir