Aukum áhuga á orku og vísindum

Á sýningunni Hjartastrengir & vatnsæðar kynnast gestir ferðalagi orkunnar. Hvaðan kemur orkan? Hvernig notum við hana?

Á sýningunni getur þú breytt morgunmatnum þínum í ljós, búið til þína eigin jarðhitaofurhetju, hlustað á ferðalag Diddu dropa, Völlu varma, Raffa rafeindar og Kúksa kúks. Tilvalið er að slaka á í Kúkakósý með góða bók eða leika í leikrýminu með skapandi STEAM leikföng.

Sýningin er ætluð börnum á öllum aldri.

Um sýninguna

Ekki er opið fyrir bókanir eins og er

Auglýst verða laus pláss í skólaheimsóknr Elliðaárstöðvar síðar. Endilega skráið ykkur á póstlista skólavina til að fá upplýsingar um leið og opnað hefur verið fyrir bókanir. Fylgist með á vef- og samfélagsmiðlum okkar, þar auglýsum við helling af skemmtilegum viðburðum og öðru spennandi sem er um að vera á svæðinu.

Framhaldsskólar og Háskólar

Nemendur framhalds- og háskóla eru velkomnir í Elliðaárstöð. Við bjóðum upp á leiðsögn um Elliðaárstöð og fræðum gesti um þær breytingar sem áttu sér stað í kjölfar rafvæðingar Reykjavíkur.

Ekki er opið fyrir bókanir eins og er endilega skráið ykkur á póstlista skólavina og fáið þá tilkynningu þegar opnað er fyrir bókanir.

Elliðaárstöð er leiðandi í STEM og STEAM menntun

Elliðaárstöð er mikilvæg tenging atvinnulífs og menntakerfis.

Við nýtum STEAM og STREAM nálgun í fræðslu og þekkingarmiðlun til barna og ungmenna. STREAM samþættir vísindi (science), tækni (technology), skemmtun (recreation), verkfræði (engineering), listir (arts) og stærðfræði (mathematics).

Með þverfaglegri nálgun á viðfangsefni er unnið með nýsköpunarhæfni, gagnrýna hugsun og lausnaleit.

Aðferðin eykur hæfni nemenda til að mæta helstu úrlausnarefnum samtímans.

Elliðaárstöð er leiðandi í orkulæsi, STEM & STEAM og vísindamiðlun á Íslandi.

Frá árinu 2022 hafa um 8000 nemendur lært um orku og hvernig veitukerfin virka í borginni.

Skólaheimsóknir eru í boði Orkuveitunnar.

Meira um STEAM

Vertu skólavinur

Skólavinir Elliðaárstöðvar fá boð á viðburði og fá forskot á að skrá sig í fræðslu.

Skrá mig
Til baka á forsíðu