Auðlindahringir 2024 – Vatnsveituhringur
Auðlindahringir er vinsæl viðburðaröð hjá Elliðaárstöð þar sem auðlindasérfræðingar Orkuveitunnar leiða þátttakendur í hjólaleiðsögn um auðlindir og innviði höfuðborgarsvæðisins. Hjólað verður á miðvikudögum og munum við bjóða í ár upp á samtals 3 hringi; Vatnsveituhring 19. júní, Hitaveituhring í ágúst og Rafveituhring í september. 

Vatnsveituhringur
Vissir þú að í krönum Reykvíkinga er vígt vatn? Guðmundur góði Hólabiskup vígði Gvendabrunna á 12. öld en þangað hafa borgarbúar sótt neysluvatn sitt í meira en 100 ár.
Vatnsveituhringur er fyrsta hjólaleiðsögnin af þremur. Farin verður 23 km löng leið fyrir fjalla-, malar- og raffjallahjól þar sem hjólað verður um vatnstökusvæði Reykvíkinga í náttúruperlunum í Elliðaárdalnum og Heiðmörk. Þátttakendur fá tækifæri til að fræðast um uppruna vatnsins, sögu vatnsveitunnar og mikilvægi hreins neysluvatns.
Þátttakendur eru beðnir um að mæta á fjalla-, malar- og raffjallahjólum kl. 17:00 við Elliðaárstöð, Rafstöðvarvegi 6.
Þráinn Friðriksson og Sigrún Tómasdóttir auðlindasérfræðingar hjá Orkuvitunni leiða hjólaferðina og miðla áhugaverðum fróðleik og sögum.
Þátttaka er ókeypis.
Hlökkum til að sjá ykkur

The water supply tour
Did you know that through the taps of Reykjavík flows consecrated water? Guðmundur, Bishop of Hólar, consecrated Gvendabrunnur in the 12th century. Today and for over a hundred years the inhabitants of the city have been receiving their drinking water from Gvendarbrunnur springs.
Reykjavík is endowed with diverse and abundant natural resources. It is the role of Reykjavík Energy and its daughter companies to harness these resources and use them to improve the quality of life of its customers. This month Elliðaárstöð will be hosting a series of events where Reykjavík Energy’s resource experts will lead participants in cycling tours of the capital area’s resources.
The water supply tour is the first of three cycling tours. A 23 km long route for mountain, gravel or CX bikes where participants will hear about the water catchment area of Reykjavík in Elliðaár and Heiðmörk. Participants get the opportunity to learn about the origin of the water, the history of the water supply and the importance of clean drinking water.
Participants are asked to show up on mountain bikes at 17:00 at Elliðaárstöð, Rafstöðvarvegur 6.
Þráinn Friðriksson and Sigrún Tómasdóttir resource experts at RE, will lead the bike rides and share interesting information and stories.
Participation is free.
Looking forward to seeing you.