Qigong æfing
- Aðgangur ókeypis
- 31. júlí 2024
- 10:00
- Sjá á korti
Qigong sumaræfingar eru farnar af stað í skrúðgarðinum bak við Heimili veitna. Næsta æfing er miðvikudaginn, 29. júlí klukkan 10:00 og er aðgangur ókeypis. Æfingarnar eru undir handleiðslu Þóru Halldórsdóttur en hún er helsti frumkvöðull Orkan í Öndvegi, áhugafélags um útbreiðslu Qigong á Íslandi.
Qigong er forn kínversk heilsuæfing og er samblanda af líkamsstöðum, hreyfingu, öndunartækni, hugleiðslu og einbeitingu. Stefnt er á að hafa æfingar á mánudögum og miðvikudögum í sumar en hvetjum áhugasama á að fylgjast með á Facebook síðu, Orkan í öndvegi hér.