Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Beðið eftir bekkjum fyrir nýja nestisaðstöðu

12. júlí 2024
Framkvæmdir í fullum gangi í skemmunni.

Mikil uppbygging hefur verið á svæðinu í kringum Elliðaárstöð síðastliðnar vikur og er nú vinna við nestisaðstöðu í skemmunni á lokametrunum. „Það er búið að fjarlægja allt, gamla ónýta hillurekka sem ekki hafa verið í notkun og fara í förgun. Það þarf að helluleggja að hluta til og mála, það er búið að panta þrjá bekki og það er hægt að opna um leið og bekkirnir koma,“ sagði Ásgeir Helgason, umsjónarmaður fasteigna og lóða í Elliðaárstöð, um framkvæmdirnar.

Borðin sem verða undir skýli hafa bæði bekki og pláss fyrir hjólastól svo öll geti notið þess að borða nesti, sama hvernig viðrar. Þá hefur einnig verið opnuð ný salernisaðstaða með hjólastólaaðgengi, þremur klósettum og skiptiborði  í skemmunni. Við þessa uppbyggingu er sannarlega verið að bæta upplifun fólks á svæðinu. Ásgeir segir nestisaðstöðuna verða opnuð almenningi í næstu viku. „Nú erum við bara að bíða eftir að fá bekkina og þá verður hægt að setjast niður með samloku og kók.“

Aðrar fréttir