Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

#

Undraskógurinn

UNDRASKÓGURINN // 19. júní // kl: 13-16
Á lokadegi Listahátíðar í Reykjavík umbreytist nýuppgert svæðið í kringum Elliðaárstöð í sannkallaða undraveröld.
Þar getur allt gerst!
Furðuverur leynast á milli trjánna og dilla sér í takt við ljúfa lifandi tónlist. Grímubúnir meðlimir Skýjasmiðjunnar og fimt sirkuslistafólk Hringleiks koma gestum á óvart með gæsahúðarvaldandi atriðum sem gestir á öllum aldri geta notið saman. Lokkandi ilmurinn frá matarvögnunum mun eflaust freista margra og dásamleg náttúran allt um kring skemmir sannarlega ekki fyrir upplifuninni.

Aðrir viðburðir