Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

#

Auðlindahringir Elliðaárstöðvar

VATNSVEITUHRINGUR // 15. júní // kl: 17-19
Auðlindahringir er ný viðburðaröð hjá Elliðaárstöð þar sem auðlindasérfræðingar OR leiða þátttakendur í hjólaleiðsögn um auðlindir höfuðborgarsvæðisins.
Vissir þú að í krönum Reykvíkinga er vígt vatn? Guðmundur góði Hólabiskup vígði Gvendabrunna á 12. öld en þangað hafa borgarbúar sótt neysluvatn sitt í meira en 100 ár.
Vatnsveituhringur er fyrsta hjólaleiðsögnin af þremur. Farin verður 23 km löng leið fyrir fjalla-, malar- og raffjallahjól þar sem hjólað verður um vatnstökusvæði Reykvíkinga í náttúruperlunum í Elliðaánum og Heiðmörk. Þátttakendur fá tækifæri til að fræðast um uppruna vatnsins, sögu vatnsveitunnar og mikilvægi hreins neysluvatns.
Þátttakendur eru beðnir um að mæta á fjalla-, malar- og raffjallahjólum kl. 17:00 við Elliðaárstöð, Rafstöðvarvegi 6.
Þráinn Friðriksson, Sædís Ólafsdóttir og Ingvi Gunnarsson auðlindasérfræðingar hjá OR leiða hjólaferðina og miðla áhugaverðum fróðleik og sögum.

Aðrir viðburðir