Gestir Elliðaárstöðvar voru svo sannarlega í góðum gír einn af þeim fáu sólríku sumardögum sem voru í júlí og fönguðum við stemninguna við Vatnsleikjagarðinn. Guðmundur, Heba, Hafsteinn, Anna, Sandra og Arna voru í sannkölluðum sumargír þegar við heyrðum í þeim. Öll höfðu áður komið á svæðið. „Ég hef komið alveg oft og mörgum sinnum, þetta er bara geggjaður staður“, sagði Heba sem er greinilega fastagestur.
Guðmundur var að koma í sitt annað skipti en áður hafði hann komið í rigningu þar sem stemningin var allt öðruvísi en á þessum sólríka degi, „nú erum við að koma í glampandi sól og þetta er algjör stemning.“
Aðspurð að því hvað heillaði mest við svæðið nefndu gestir góða aðstöðu sem fæli í sér frelsi fyrir krakkana að leika sér og sulla í vatninu. Einnig þau þægindi sem fólgin eru í því að geta sest niður og fylgst með krökkunum úr fjarlægð.
„Mér finnst þetta bara frábært. Það er hægt að sitja hér úti á kaffihúsi, fylgjast með krökkunum leika sér. Mér finnst líka næs að það er svona mismunandi stemning sem maður getur valið sér. Maður getur farið inn í rjóður fyrir svona meira næði (e. privacy) og sitja í grasi eða verið meðal fólksins á kaffihúsinu. Mér finnst það geðveikt,“ sagði Guðmundur
Það geta því öll fundið eitthvað við sitt hæfi við Elliðaárstöð þar sem Vatnsleikjagarðurinn, Á Bístró, Elliðaáin og fjölbreyttar gönguleiðir um Hólmann eru meðal afþreyinga. Það er því ekki að undra að Elliðaárdalurinn er fjölsóttasta útisvæði borgarinnar með allar sínar perlur.
Hægt er að sjá viðtölin við gesti svæðisins hér að neðan.
Viðtöl við gesti Elliðaárstöðvar