Persónuverndarstefna OR

Um vinnslu persónuupplýsinga af hálfu Elliðaárstöðvar gildir persónuverndarstefna OR.

Skilmálar vegna miðakaupa

Vinsamlegast farið vel yfir miðakaupin þegar þau eiga sér stað og kannið hvort rétt dags- og tímasetning sé til staðar. Elliðaárstöð ábyrgist ekki sms og tölvupóst áminningar um viðburði, námskeið eða sýningar. Það er á ábyrgð eiganda miðans að halda utan um það.

Ef sýning, viðburður eða námskeið fellur niður, þá er eigendum miða boðin full endurgreiðsla hafi verið greitt fyrir miðann.

Ef tímasetningu sýningar, viðburðar eða námskeiðs er breytt, þá færast miðarnir sjálfkrafa á nýja tímasetningu og upplýsingar sendar til kaupanda í tölvupósti. Ef ný tímasetning hentar ekki á kaupandi rétt á endurgreiðslu.

Miðasala Elliðaárstöðvar meðhöndlar persónuupplýsingar miðaeigenda í samræmi við lög og  persónuverndarstefnu OR sem er aðgengileg á heimasíðu Elliðaárstöðvar.

Miðasala Elliðaárstöðvar og aðstandendur sýninga, viðburða og námskeiða bera enga ábyrgð á persónulegum munum miðaeigenda fyrir, á meðan, eða eftir að viðburði lýkur.

Komist miðaeigandi einhverra hluta vegna ekki á sýningu, viðburð eða námskeið fást miðar ekki endurgreiddir þegar 48 tímar eða minna er þar til að viðburður, námskeið eða sýning hefst.

Fyrirspurnir vegna miðakaupa berist á ellidaarstod(hjá)ellidaarstod.is

Góða skemmtun!

Notkun á vafrakökum (e. cookies) á vef Elliðaárstöðvar

Ábyrgðaraðili og Persónuverndarstefna: Ábyrgðaraðili vefsíðunnar er Orkuveitan, og vinnsla persónuupplýsinga fer fram samkvæmt stefnu Orkuveitunar um persónuvernd og upplýsingaöryggi.

Um Vafrakökur: Vafrakökur eru litlar textaskrár sem geymdar eru í vafranum til að bæta upplifun þína á vefnum og tryggja rétta virkni hans. Kökur frá fyrsta aðila, þ.e. Orkuveitan, eru notaðar til að veita nauðsynlega virkni. Auk þess eru kökur frá þriðja aðila, svo sem Google og Facebook, notaðar til að fylgjast með hegðun þinni á netinu og safna gögnum sem nýtast í markaðssetningu.

Stýring samþykkis með CookieHub: Orkuveitan notar CookieHub til að stýra samþykki fyrir notkun kökum. Þú getur valið að samþykkja eða hafna mismunandi tegundum kökum sem hjálpar þér að hafa stjórn á þeim upplýsingum sem safnað er og hvernig þær eru notaðar.

Tegundir Vafrakaka:

  • Nauðsynlegar kökur: Ómissandi fyrir virkni vefsins, tryggja öryggi tenginga og grunnaðgerðir. Notkun þeirra er ekki háð samþykki.
  • Stillingavafrakökur: Muna stillingar og hegðun vefsins út frá tungumáli og staðsetningu notanda. Þú getur valið hafna notkun þeirra.
  • Tölfræðilegar vafrakökur: Fylgjast með fjölda notenda og skilja hvernig þeir nota vefinn. Safna ópersónugreinanlegum upplýsingum til greiningar umferðar og tölfræðilegra atriða. Þú getur valið hvort þú samþykkir notkun þeirra.
  • Markaðsvafrakökur: Safna upplýsingum um notkun notenda á vefsíðunni, t.d. hvað notandi hefur skoðað og hvað hann ýtir á. Notaðar til að sníða auglýsingar að þörfum notandans. Þú getur valið hvort þú samþykkir notkun þeirra.

Frekari upplýsingar og stjórnun

Nánari upplýsingar um hvaða kökur eru í notkun hverju sinni getur þú fundið undir flipanum „vafrakökuyfirlýsing“ í samþykkisforminu. Þú getur einnig stýrt því hvaða þriðju aðilar fá aðgang að vefkökum frá þér með því að ýta á flipann „Söluaðilar“.

Smelltu hér til að breyta vefköku stillingum