Um 60 manns tóku þátt í öðrum Auðlindahring sumarsins, Hitaveituhringnum, þar sem hjóluð var rúmlega 35 km leið. Lagt var af stað frá Elliðaárstöð og hjólað yfir á Reynisvatnsheiði þar sem staðsettir eru stórir hitaveitutankar sem safna vatni frá virkjununum. Þaðan var hjólað inn í Mosfellssveit að Reykjum þar sem má finna eitt af vinnslusvæðum hitaveitunnar.
Degi fyrir Hitaveituhringinn var heitavatnslaust á stórum hluta höfuðborgarsvæðisins vegna framkvæmda Veitna og eflaust mörg sem gerðu sér grein fyrir mikilvægi heita vatnsins. Tilviljun ein réði því að Hitaveituhringur var degi síðar en tilgangur Auðlindahringja er einmitt að fræða þátttakendur um mikilvægi innviða og auðlinda. „Skilningur á innviðum er lykillinn að því að fólk beri einhverja virðingu fyrir þessum hlutum,“ segir Þráinn Friðriksson auðlindasérfræðingur Orkuveitunnar.
Hinir vinsælu Auðlindahringir eru haldnir þriðja sumarið í röð á vegum Elliðaárstöðvar þar sem m.a. er boðið upp á veitingar fyrir hópinn á leiðinni. „Fólk mætir með sín hjól niður í Elliðaárstöð, svo hjólum við. Fyrsta stopp er frekar fljótlega til að ná hópnum saman. Ætli þetta sé ekki svona fimm stopp og svo náttúrulega kjaftað á leiðinni þannig þetta er ekki kapphjól,“ segir Þráinn.
Evgenia og Sævar, þátttakendur í Hitaveituhringnum voru sammála því að búast mætti við skemmtilegri fræðslu og upplifun sem fæst ekki öðruvísi en í gegnum hjólaleiðsögn. „Upplifi landslagið allt öðruvísi, upplifi meira í gegnum líkamann nánast. Man allt miklu betur, þetta fer meira inn í heilann í gegnum líkamann,“ segir Evgenia. Sævar nefndi félagsskapinn, skemmtilegar leiðir og allan fróðleikinn sem skilar sér, „maður tekur þetta beint í æð svona, maður er í stemmingu að hlusta“, segir Sævar.
Þriðji og síðasti Auðlindahringur sumarsins verður þann 18. september þar sem farinn verður Rafveituhringur.
Helga Björg Pétursdóttir, vísindamiðlari Elliðaárstöðvar tekur viðtöl við Þráinn, auðlindasérfræðing og þátttakendur Hitaveituhrings.