Elliðaárstöð á HönnunarMars – Hönnun og upplifun í borgargarði
-
Aðgangur ókeypis
-
7. maí - 8. maí 2022
-
00:00
-
Sjá á korti
Fjölbreytt dagskrá verður í Elliðaárstöð yfir HönnunarMarshelgina, dagana 7. og 8. maí. Aðgangur er ókeypis og opið öllum.
Dagskrá báða dagana, 7. og 8. maí:
11:00 – 12:30: Maðurinn í skóginum – Hönnunarganga um Elliðaárhólma þar sem gestir verða leiddir um skóginn til að upplifa hönnunarverk Kristínar Maríu Sigþórsdóttur, Friðriks Steins Friðrikssonar, Sóleyjar Þráinsdóttur og Stúdíó Fléttu.
13:00 – 14:00: Leiðsögn með hönnunarhópnum Tertu um Elliðaárstöð.
14:30 – 15:30: Útþensluferð með þjónustufulltrúum Mannyrkjustöðvarinnar: Búa Bjarmari Aðalsteinssyni og Hrefnu Lind Lárusdóttur.
16:00 Frumflutningur á tónverkinu Skerpla á dórófón í einstökum vélarsal Elliðaárstöðvar – Eydís Egilsdóttir Kvaran flytur eigið verk.
12:00 – 17:00: Yfir daginn verður upplifun fyrir börn og fullorðna á svæði Elliðaárstöðvar; Blómahönnunarverkstæði Litahlíðar í gestastofu Elliðaárstöðvar, Hljóðgarður o.fl.
Nánari upplýsingar um hvern viðburð er á Facebooksíðu Elliðaárstöðvar: HÉR
Einnig eru upplýsingar um dagskrána á vefsíður HönnunarMars: HÉR