Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Síðasti Auðlindahringur sumarsins

25. september 2024
40 manns tóku þátt í Rafveituhringnum í ár.

Rafveituhringurinn var farinn þann 18. september síðastliðinn og var síðasti Auðlindahringur sumarsins. Það voru Helgi Guðjónsson og Agnes Helga Bjarnadóttir sérfræðingar hjá Veitum sem leiddu hjólaferðina en hjólað var rúmlega 22 kílómetra leið. Þátttakendur fengu fræðslu um ferli raforkuflutnings frá virkjun til viðskiptavina þar sem skoðuð voru lykil mannvirki í flutnings- og dreifikerfi rafmagnsins.

Þátttakendur fengu innsýn í flókið kerfi flutnings og dreifingu rafmagns á höfuðborgarsvæðinu. Um það bil 1000 dreifistöðvar og 8000 götuskápar eru í kerfi Veitna. „Það er bara hörku áskorun að sjá um þetta allt,“ segir Helgi og bætti við að fólk átti sig ekki endilega á því magni af lögnum sem þarf til að koma rafmagni til viðskiptavina. Fólk var sýnilega forvitið um rafveituna þar sem um 40 manns tóku þátt í Rafveituhringnum. „Ég hef fundið á mér undanfarin ár að fólk vill oftast vita hvað þetta dót er,“ segir Helgi. Hann vonaðist til að þátttakendur öðluðust frekari skilning á rafdreifikerfinu.

 

Viðtal við Helga Guðjónsson, sérfræðing hjá Veitum.

Rafveituhringur 2024

Alls 140 manns tóku þátt í Auðlindahringjunum í sumar. Rafveituhringurinn var sá þriðji en fyrr í sumar var hjólað Vatnsveituhring og Hitaveituhring. Við hlökkum til að hjóla og fræðast meira með ykkur næsta sumar.

Aðrar fréttir