Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Vistvænar samgöngur í öndvegi

26. september 2024

Bílablindan, umferðarsköpun og deilihagkerfisvætt örflæði var meðal þess sem kom fram á hádegismálþingi sem fram fór í Elliðaárstöð í tilefni af Evrópskri Samgönguviku. Veitur, Orka náttúrunnar og Elliðaárstöð stóðu fyrir málþinginu þar sem áhersla var lögð á hjólandi og gangandi umferð. Rún Ingvarsdóttir, samskiptastýra Veitna, stýrði málþinginu sem var vel sótt.

Flutt voru fróðleg erindi frá sérfræðingum af ýmsum sviðum. Magnea Guðmundsdóttir, arkitekt hjá teiknistofunni Stiku, fjallaði um mikilvægi vandaðs skipulags og hönnunar bæjarrýma. Eyþór Máni Steinarsson, framkvæmdarstjóri Hopp, ræddi virkni deilihagkerfisvæddra samgangna. Edda Ívarsdóttir, borgarhönnuður hjá Pláss, ræddi áhrif bílablindunar á samfélagið.

Bílablinda er hugtak sem hefur vakið mikla athygli en það vísar til þess að við sjáum ekki hvaða áhrif bílar hafa haft á umhverfið okkar, líðan og á samfélagið, eins og Edda komst að orði. Áhugasamir geta kynnt sér bílablinduna betur og horft á streymi málþingsins hér.

Síðasti Auðlindahringur sumarsins var einnig hjólaður frá Elliðaárstöð sama dag og voru rúmlega 40 manns sem tóku þátt. Auðlindahringir eru viðburðarröð hjá Elliðaárstöð þar sem rík áhersla er lögð á hjól sem samgöngumáta og því tilvalinn viðburður í Samgönguviku. Auðlindasérfræðingar Orkuveitunnar leiddu þátttakendur um auðlindir og innviði höfuðborgarsvæðisins.

Í samgönguviku var einnig komið fyrir HoppSpot afsláttarsvæði við gaflinn á gömlu straumskiptistöðinni í Elliðaárstöð. HoppSpot gerir notendum kleift að leggja rafskútum á ákveðnum stað sem eykur þægindi og bætir aðgengi rafskútanna.

Samgönguvika er átak sem ýtir undir sjálfbærar samgöngur. Við hvetjum gesti Elliðaárstöðvar að nota vistvæna samgöngumáta en fjölmargar göngu- og hjólastígar liggja að Elliðaárstöð.

Aðrar fréttir