Orku- og vísindadagur Orkuveitunnar var haldinn þriðja árið í röð í Elliðaárstöð og var viðburðurinn afar vel heppnaður. Árlega bíður Orkuveitan og dótturfélög háskólanemum í eina stóra vísindaferð og var metþátttaka í ár. Öll rými fylltust enda tæplega 700 nemendur sem kíktu í heimsókn. Boðið var upp á fræðslu, skemmtun og veitingar.
Vísindamiðlarar Elliðaárstöðvar miðluðu fræðslu til gesta og voru með sýningartúrbínu á svæðinu. Þá var einnig boðið upp á að snúa lukkuhjóli þar sem frábærir vinngar voru í boði. Elliðaárstöð heyrir undir deild Rannsókna og nýsköpunar en þau buðu upp á að sýrustigsmæla drykki og skoða kristalla í víðsjá. Þá var starfsfólk Veitna sem sýndi meðal annars hermilíkön og smádreifistöð rafmagns. Orka náttúrunnar var með hleðslubíl á svæðinu og Ljósleiðarinn bauð nemendum að kíkja inn í tengistöðvargám. Carbfix sýndi nemendum hvernig aðferð Carbfix er beitt í þeim tilgangi að binda koldíoxíð varanlega í berg á innan við tveimur árum.
Tilgangur dagsins var að kynna nemendum fyrir fjölbreyttri starfsemi Orkuveitunnar og starfsmöguleikum innan fyrirtækisins. Hér að neðan má sjá stutt myndband þar sem tekin voru viðtöl við nemendur og starfsfólk. Frábær stemming var á svæðinu eins og sjá má.