Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Hönnunaráskoranir fjölskyldunnar í Elliðaárstöð

1. október 2024

Hugmyndasmiðir verða með hönnunaráskorarnir fyrir skapandi fjölskyldur í Elliðaárstöð í vetur. Ninna hugmyndasmiður mun leiða smiðjurnar sem hugsaðar eru sem samverustund fyrir börn á aldrinum 7-12 ára og foreldra þeirra eða forráðamenn.

Um er að ræða fimm smiðjur þar sem Ninna leggur fyrir mismunandi hönnunaráskoranir á Verkstæði Hugmyndasmiða í Elliðaárstöð. Verkstæðið er staðsett í gömlu rafstöðinni og í einstöku umhverfi Elliðaárstöðvar þar sem þátttakendum gefst kostur á að virkja sköpunarkraftinn, efla samvinnu fjölskyldunnar, fikta og skapa saman.

Unnið verður með endurnýttan efnivið sem bjargað hefur verið frá förgun til að skapa eitthvað alveg nýtt og spennandi hvort sem er í gegnum smíðar, leiki, föndur eða tilraunir.

Dagskrá vetrarins
Laugardaginn 5. október kl. 10-12 – Skógarverur lifna við
Laugardaginn 12. október kl. 10-12 – Skógarverur lifna við (endurtekið)
Laugardaginn 19. október kl. 10-12 – Hönnum hús
Laugardaginn 2. nóvember kl. 10-12 – Höfum hátt
Laugardaginn 16. nóvember kl. 10-12 – Virkjum vindinn
Laugardaginn 7. desember kl. 10-12 – Lifandi jólakveðja

Tryggðu þér og þínum miða á Fjölskylusmiðju Hugmyndasmiða á vef Elliðaárstöðvar.

Aðrar fréttir