Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Elliðaárnar með yfirburði á heimsvísu

22. október 2024
Börn að leik við Elliðaárnar en það hefur verið vinsælt að vaða í ánum.

Laxveiðiá í miðri höfuðborg er algjörlega einstakt á heimsvísu. Árnar hafa að geyma Atlantshafslax sem er með einna hæstu lífslíkur í heiminum í dag. Starfsemi Orkuveitunnar í Elliðaárdalnum hefur frá upphafi tekið mið af lífríkinu í ánum sem er að skila sér í heilbrigðum laxastofni. Forveri Orkuveitunnar, Rafmagnsveita Reykjavíkur, hafði umsjón með ánum frá árinu 1925 en þá hófst fiskræktun. Stangveiðifélag Reykjavíkur var stofnað árið 1939 og hefur félagið síðan þá haft árnar á leigu. Meðal annars hefur Stangveiðifélagið verið með laxateljara og þannig náð að halda vel utanum stofninn.

Rick Rosenthal vinnur að nýrri kvikmynd um Atlantshafslaxinn og var við tökur við bakka Elliðaáa. Myndin er um villta laxa, heimkynni þeirra og áhrif loftslagsbreytinga. Hann segir að það fækki verulega í laxastofninum í Evrópu og Norður Ameríku og telur miklvægt að bjarga villta laxinum á Íslandi. „Tvö til þrjú þúsund laxar ganga upp í ána í miðri borginni. Vatnsgæðin eru mikil, áin er ekki menguð,“ sagði Rick.

„Ég veit ekki um viðlíka á í heiminum sem geymir einn heilbrigðasta stofn Atlantshafslaxins,“

sagði Rick.

Jóhannes Sturlaugsson líffræðingur og sérfræðingur laxfiska segir að lífslíkur laxa í Elliðaánum séu með þeim bestu í veröldinni. „Þegar skoðaðar eru viðlíka ár sem eru með Atlantshafslax þá eru Elliðaárnar með bestu lífslíkur laxa í veröldinni í dag. Við erum að fá meira af fiski sem er að hrygna í annað sinn og jafnvel þriðja. Það er meira að segja gildandi heimsmet, fimmta sinn sami laxinn,“ sagði Jóhannes. Nánar er hægt að lesa um hið umrædda met hér.

Kastljós fjallaði um málið og má sjá viðtölin í heild sinni hér að neðan.

Aðrar fréttir