Sumarverkefni fyrir háskólanema á menntavísindasviði
Vertu með okkur í Elliðaárstöð að fræða fólk um jarðhita og orku í Elliðaárdalnum.
Verkefnið „Heitur reitur” felur í sér þróun fræðsluefnis fyrir almenning og skólahópa um jarðhita og hitaveituna í Elliðaárdal. Fræðsluefnið er mótað í anda STEAM og STREAM menntunar þar sem áhersla er lögð á samvinnu, lausnaleit, vísindalæsi, hönnunarhugsun og nýsköpun. Lestu meira um STEAM menntun hér.
Afrakstur verkefnisins er fræðsluefni sem birt verður á vef og nýtt í heimsóknum gesta og skólahópa í Elliðaárstöð.
Verkefnið er ætlað nemendum sem stunda nám í menntavísindum á háskólastigi eða eru nýútskrifaðir og er styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna.
Markmið verkefnisins eru að:
- styðja við innleiðingu STEAM menntunar í Elliðaárstöð,
- þróa efni sem eykur þekkingu ungmenna og borgarbúa á jarðhita og heitu vatni sem dýrmætri auðlind,
- auka vísindalæsi gesta dalsins.
Helstu verkþættir
- Greining gagna um heitavatnsnotkun borgarbúa og miðlun efnis á skapandi hátt.
- Könnun forþekkingar gesta á hitaveitu og jarðhita í Elliðaárdal.
- Gerð fræðsluefnis um jarðhitann, hitaveituna í Elliðaárdal og gufuborinn Dofra.
Elliðaárstöð er nýr áfangastaður í Elliðaárdal á vegum Orkuveitu Reykjavíkur þar sem gestir koma til að fræðast, upplifa, skapa og njóta náttúrunnar. OR er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður fólks með mikla þekkingu. Fyrirtækið leitast við að vera í fremstu röð hvað snertir öryggi, jafnrétti, vinnuumhverfi og möguleika til að samræma vinnu og einkalíf. Við hvetjum öll kyn til að sækja um.
Sæktu um hér https://jobs.50skills.com/orkuveita/is/20158
Nánari upplýsingar veitir Margrét Hugadóttir leiðtogi þekkingarmiðlunar og fræðslu á netfangið margret.hugadottir@or.is
Umsóknarfrestur er til og með 11. maí .