Auðlindahringir 2023 – Fráveituhringur
-
Aðgangur ókeypis
-
17. maí 2023
-
17:00
-
Sjá á korti
Hinir geysivinsælu Auðlindahringir hefjast aftur þann 17. maí næstkomandi. Auðlindahringir er áhugaverð viðburðaröð hjá Elliðaárstöð þar sem auðlindasérfræðingar OR leiða þátttakendur í hjólaleiðsögn um auðlindir og innviði höfuðborgarsvæðisins. Í ár bætist við Jarðhitahringurinn, fjallahjólahringur sem hefst og endar við Hellisheiðarvirkjun og verða hringirnir því samtals fimm.
Vegleg útdráttarverðlaun verða í boði TRI eftir síðasta Auðlindahringinn, en fimmtudaginn 15. júní verða 3 nöfn dregin úr potti með nöfnum þátttakenda allra fimm Auðlindahringanna. Skráning þátttakenda fer fram í byrjun hvers Auðlindahrings.
Auðlindahringir 2023:
Fráveituhringur: Miðvikudaginn 17. maí frá 17:00 – 19:30. Byrjar og endar í Elliðaárstöð
Vatnsveituhringur: Miðvikudaginn 24. maí frá 17:00 – 19:30. Byrjar og endar í Elliðaárstöð
Hitaveituhringur: Miðvikudaginn 31. maí frá 17:00 – 19:30. Byrjar og endar í Elliðaárstöð
Rafveituhringur: Miðvikudaginn 7. júní frá 17:00 – 19:30. Byrjar og endar í Elliðaárstöð
Jarðhitahringur: Miðvikudaginn 14. júní frá 17:00 – 19:30. Byrjar og endar við Jarðhitasýningu í Hellisheiðarvirkjun
Fyrsti hringur ársins er Fráveituhringurinn
Hvernig væri Reykjavík án fráveitu? Vissuð þið að Cloacina var gyðja hreinlætis? Fráveituhringur er fyrsta hjólaleiðsögnin af fimm. Farin verður 26 km götuhjólaleið sem leidd er hjólandi af auðlindasérfæðingum OR. Þau munu hjóla með þátttakendum um strandlengju borgarinnar og fræða fólk um þessa mikilvægu en földu starfsemi sem enginn vill vera án.
Þátttakendur eru beðnir um að mæta á hjólum/rafhjólum kl. 17:00 við Elliðaárstöð, Rafstöðvarvegi 6.
Hlöðver Þorgeirsson sérfræðingur í fráveitu, Þráinn Friðriksson, Sædís Ólafsdóttir og Ingvi Gunnarsson auðlindasérfræðingar hjá OR leiða hjólaferðina og miðla áhugaverðum fróðleik og sögum.
Þátttaka er ókeypis.
Hlökkum til að sjá ykkur.