Auðlindahringir2023 – Jarðhitahringur
-
Aðgangur ókeypis
-
14. júní 2023
-
18:00
-
Sjá á korti
Fögnum saman síðasta Auðlindahring sumarsins!
Síðasti Auðlindahringur sumarsins er Jarðhitahringurinn, 15 km fjallahjólahringur á Henglinum. Mæting á bílastæðinu við Jarðhitasýninguna í Hellisheiðarvirkjun kl.18:00 þar sem auðlindasérfræðingar og starfsfólk frá OR og ON taka vel á móti þátttakendum.
Dagskrá:
- Mæting á bílastæðinu við Jarðhitasýninguna í Hellisheiðarvirkjun kl:18:00
- Auðlindasérfræðingar og starfsfólk frá OR og ON taka á móti þátttakendum og segja frá hjólaleiðinni sem mun taka um 2 klst
- Dregin verða 3 nöfn úr potti með nöfnum þátttakenda allra fimm Auðlindahringanna. Skráning þátttakenda fór fram í byrjun hvers Auðlindahrings. Verðlaun eru frá TRI hjólreiðaverslun, Jarðhitasýningunni og Elliðaárstöð
- Upp úr 18:00 verður lagt af stað í 15 km hring, sem er mestmegnis á möl. Mælst er til þess að þátttakendur séu á fjallahjólum eða raffjallahjólum
- Á miðri leið fá þátttakendur nesti í boði Jarðhitasýningarinnar
- Jarðhitahringurinn endar við Hellisheiðarvirkjun upp úr kl:20:00
Jarðhitahringur
Í Hengilinum er að finna einar mikilvægastu auðlindir Íslands. Frá jarðhitavirkjunum kemur yfir helmingur af heita vatninu sem notað er á Höfuðborgarsvæðinu og drjúgur hluti rafmagnsins.
Jarðhitahringurinn er fimmta og síðasta hjólaleiðsögn sumarsins. Farin verður 15 km hjólahringur, mestmegnis á möl. Í ferðinni verður hjólað um jarðhitasvæði Hellisheiðarvirkjunnar og fjallað um hvernig jarðhiti er nýttur til að framleiða rafmagn og heitt vatn – hvaða innviðir þurfa að vera til staðar og hvaða áhrif vinnslan hefur á umhverfi og samfélag.
Þátttakendur eru beðnir um að mæta á fjallahjólum eða raffjallahjólum kl. 18:00 á bílastæðinu við Jarðhitasýninguna í Hellisheiðarvirkjun.
Sædís Ólafsdóttir, Ingvi Gunnarsson, Magnea Magnúsdóttir og Gunnar Gunnarsson auðlindasérfræðingar hjá OR og ON leiða hjólaferðina og miðla áhugaverðum fróðleik og sögum.
Þátttaka er ókeypis en við biðjum alla þátttakendur vinsamlegast að klæða sig eftir veðri.
ATHUGIÐ!
Ef veðurspáin er slæm gætum við þurft að fresta viðburðinum.
Hlökkum til að sjá ykkur.