Hljóðheimur víólunnar – tónleikar fyrir tvær víólur og hús
-
Aðgangur ókeypis
-
12. júlí 2023
-
20:00
-
Sjá á korti
Viola soundscapes – music for two violas in unique acoustics
Rafstöðin sem þriðja hljóðfærið
Á tónleikunum flytur Duo Borealis fjölbreytta efnisskrá fyrir tvær víólur frá hinum ýmsu tímabilum tónlistarsögunnar og leiðir áheyrendur um hljóðheim víólunnar sem spannar allt frá ofurveikum undurblíðum tónum upp í stórkostlegar hljómkviður og átök.
Efnisskrá tónleikanna er sérvalin með hljómburð Elliðaárstöðvar í huga og má segja að rafstöðin fái nýtt hlutverk sem þriðja hljóðfærið á tónleikunum.
Hljóðheimur víólunnar – tónleikar fyrir tvær víólur og hús
Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröðinni Hljóðheimur víólunnar (Viola Soundscapes) þar sem leikið er á óhefðbundnum tónleikastöðum sem eiga það sameiginlegt að búa yfir einstökum hljómburði.
12. júlí kl 20 Elliðaárstöð í Reykjavík
13. júlí kl 17 Akranesviti
14. júlí kl 17 Vatnasafnið í Stykkishólmi
15. júlí kl 21:15 Síldarverksmiðjan á Djúpuvík
Tónleikarnir standa í um klukkutíma án hlés.
Íslensk-þýska víóludúóið Duo Borealis sem skipað er Önnu Hugadóttur og Annegret Mayer-Lindenberg fagnar 20 ára starfsafmæli dagana 12.-15. júlí næstkomandi með tónleikaferðinni Hljóðheimur víólunnar (Viola Soundscapes). Leikið verður á óhefðbundnum tónleikastöðum sem eiga það sameiginlegt að búa yfir einstökum hljómburði og er efnisskrá hverra tónleika sérvalin með hljómburð hvers staðar í huga.
Um flytjendur:
Anna Hugadóttir og Annegret Mayer-Lindenberg kynntust á námsárum sínum í Hollandi og hafa unnið saman sem víóludúó síðan 2003. Þær einbeita sér einkum að barokktónlist, tónlist frá 20. öld og samtímatónlist og hafa á efnisskrá sinni fjölbreytt úrval verka fyrir tvær víólur. Sem Duo Borealis hafa þær komið fram á tónleikum og tónlistarhátíðum á Íslandi, í Hollandi og í Þýskalandi, síðast á Barokkhátíð Hólastiftis þar sem leikið var á tvær barokkvíólur smíðaðar af Annegret Mayer-Lindenberg.
Anna Hugadóttir (1980) er víóluleikari, tónlistarkennari og útsetjari. Hún stundaði framhaldsnám í tónlist við Fontys Conservatorium í Hollandi, Norges Musikkhøgskole í Noregi og við Listaháskóla Íslands. Anna starfar sem tónlistarkennari við Tónskóla Sigursveins og sem víóluleikari í lausamennsku. Hún hefur unnið með fjölda tónlistarfólks og hópa þvert á stíla en hefur einbeitt sér að upprunaflutningi forntónlistar undanfarin ár. Anna leikur á barokkvíólu með kammerhópnum ReykjavíkBarokk og sinnir verkefnastjórn fyrir hópinn. Hún hefur einnig gefið út útsetningar og námsefni fyrir unga strengjaleikara. www.annahuga.is
Annegret Mayer-Lindenberg (1978) er víóluleikari, fiðlusmiður, tónlistarkennari og tónskáld. Hún stundaði framhaldsnám í víóluleik og samtímatónlist við Fontys Conservatorium í Hollandi og Koninklijk Conservatorium Gent í Belgíu. Annegret leikur jöfnum höndum á barokkvíólu, viola d´amore og nútímahljóðfæri. Hún einbeitir sér einkum að barokktónlist og samtímatónlist og ekki síst að þverfaglegu samstarfi listgreina. Annegret hefur verið meðlimur hljómsveitarinnar Ensemble Garage (Köln, DE) síðan árið 2010 og leikur reglulega með sveitum á borð við Ensemble Musikfabrik og Harmonie Universelle. Hún skrifar einnig eigin tónlist, er í tónsmíðanámi í Freiburg í Þýskalandi og hefur gefið út nokkur verka sinna. Annegret lærði fiðlusmíði í Mittenwald í Þýskalandi, rekur verkstæði í Köln og fæst þar við nýsmíði og viðgerðir. www.annegretmayerlindenberg.com
Tónleikaröðin er styrkt af Tónlistarsjóði, Menningarsjóði FÍH, Hótel Djúpuvík, Elliðaárstöð og Akranesvita. Aðgangur er ókeypis en tekið er á móti frjálsum framlögum tónleikagesta.
Nánari upplýsingar má nálgast á Facebook viðburði tónleikaraðarinnar.