Sveppaganga fjölskyldunnar
-
Aðgangur ókeypis
-
15. ágúst 2023
-
17:00
-
Sjá á korti
Í sveppagöngu fjölskyldunnar göngum við með Helenu Mörtu Stefánsdóttur skógvistfræðingi um skóginn í Elliðaárdalnum og leitum að sveppum.
Við ræðum um mikilvægi þeirra fyrir lífríkið og hvar þá er helst að finna. Börn og fullorðnir sem vilja læra að þekkja sveppi sem öruggt er að borða frá þeim óætu og eitruðu eru hjartanlega velkomin. Leitað verður að sveppum í skóginum og þeir skoðaðir og greindir.
Vinsamlegast mætið klædd eftir veðri og þau sem vilja tína sveppi, geta tekið með sér körfu eða bréfpoka og lítinn hníf.
Gangan hefst kl. 17:00 við Rafstöðina, Elliðaárstöð.
Gangan er ókeypis og eru öll hjartanlega velkomin.
ENGLISH
We welcome kids and adults that want to learn to recognise a few species of mushrooms it is safe to eat.
The walk starts at 17:00 at Rafstöðin, Elliðaárstöð.
The walk is free of charge, and all are welcome.