Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

#

Hljómar árstíðanna í Elliðaárdal – vetur

Undanfarna mánuði hafa söngkonan Heiða Árnadóttir, píanóleikarinn Tinna Þorsteinsdóttir og víóluleikarinn Guðrún Hrund Harðardóttir stundað reglulega göngutúra í Elliðaárdalnum þar sem þær hafa hlustað á hljóm árstíðanna og sótt innblástur í náttúruna. Nú bjóða þær fjölskyldum og forvitnu fólki á öllum aldri með sér í hlustunargöngu í náttúrunni sem enn klæðist vetrarbúningi, eða hvað?

Áður hafa þær boðið áheyrendum á vor- og hausttónleika í Elliðaárdalnum. Á vel völdum stoppustöðvum bjóða þær upp á lifandi tónlistarflutning sem kallast á við árniðinn, og aldrei að vita nema smáfuglar eða krummi taki þátt í að skapa hljóðmyndina.

Á dagskrá eru spunaverk og vetrarlög eftir ýmsa höfunda, en tónleikagestum verður einnig boðið að vera virkir þátttakendur og taka undir í söng eða spila á efnivið úr náttúrunni.Tónleikagestir safnast saman á bakvið kaffihúsið, rétt við leikvöllinn og ganga af stað í fylgd tónlistarkvennanna uppúr kl.15.

Vinsamlegast mætið í þægilegum skóm og klædd eftir veðri.
Gert er ráð fyrir að dagskráin í heild taki tæpa klukkustund, en þátttakendum er frjálst að ganga styttri leið eftir hentugleikum.

⚡️ Verkefnið er unnið í samvinnu við Elliðaárstöð og er aðgangur ókeypis .

☕ Þess má geta að nýtt kaffihús við Elliðaárstöð verður opið frá 11-17 á tónleikadegi og tilvalið að heimsækja það fyrir eða eftir tónleikagönguna!

Aðrir viðburðir