Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Til baka

Skapandi sumarnámskeið í Elliðaárstöð

Meistarabúðir Hugmyndasmiða fara fram í Elliðaárstöð annað árið í röð.

Meistarabúðir Hugmyndasmiða er skapandi sumarnámskeið fyrir krakka á aldrinum 10-11 ára sem vilja læra að fá hugmyndir sem geta breytt heiminum. Þar sem námskeiðið fer fram í samstarfi við Elliðaárstöð munu krakkarnir sækja innblástur úr umhverfinu sem hægt er að nýta í hugmyndavinnuna.

Námskeiðið fer fram bæði innan- og utandyra á svæði Elliðaárstöðvar og munu þátttakendur smíða og búa til, fara í leiki og lenda í ævintýrum.

Meistarabúðirnar fara fram í Elliðaárstöð dagana 23.-25. júní kl. 9-12 og verða undir handleiðslu hugmyndasmiðsins Ninnu Þórarinsdóttur.

Hægt er að skrá sig á námskeiðið á heimasíðu hugmyndasmiða hér.

 

Meistarabúðir Hugmyndasmiða 2024

Á námskeiðinu munu þátttakendur læra:

  • að fá hugmyndir og hugsa skapandi

  • hvernig hægt er að sækja innblástur úr umhverfinu og nýta í hugmyndavinnu

  • að búa til hugmyndir með og fyrir náttúruna

  • ýmsan fróðleik um endurnýtingu, orku og vísindi

Aðrar fréttir