Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Hlaupaleið Heimsmeistaramótsins í Bakgarðshlaupum 2022

Heimsmeistaramót liða í Backyard Ultra fór fram í Elliðárdal árið 2022.

Fimmtán hlauparar kepptu fyrir Íslands hönd í heimsmeistaramóti í bakgarðshlaupi (Backyard Ultra) í Elliðaárdal. Ræst var á sama tíma í þrjátíu og sjö löndum og eðli hlaupsins er þannig að hlaupinn er 6,7 km hringur á hverjum klukkutíma þar til aðeins einn hlaupari stendur eftir.

Samanlagður hringjafjöldi hvers lands telur síðan til heimsmeistaratitils þannig að landið sem nær að hlaupa flestu hringina sigrar. Það er því mikið undir öllum hlaupurum komið, en jafnframt er þetta einstaklingskeppni milli þeirra hér á Íslandi. Sigurvegarinn keppir svo fyrir Ísland í alþjóðlegri keppni.

Alls taka 555 af hlauparar þátt í 37 landsliðum þar sem 15 eru í hverju liði. Hvert lið hleypur í sínu eigin landi og hefja öll lið keppni á nákvæmlega sama tíma.

Keppendur í Bakgarðshlaupinu, hlaupa í Elliðaárdal 2022.

Hlaupa- og gönguleið

Hlaupaleið heimsmeistaramótsins í bakgarðshlaupum 2022

#6.7 KM

Hringurinn (6,7km) hefst við Elliðaárstöð í Elliðaárdal og er hlaupið í Hólmanum og kringum hann. Leiðin er mestöll á góðum náttúrustígum en að hluta til á malbikuðum göngustíg.

FATMAP →

Þorleifur Þorleifsson stóð uppi sem sigurvegari í bakgarðshlaupi í Elliðaárdal. Hann hafði betur í baráttu við Marí Järsk í lokahluta keppninnar. Þorleifur lauk keppni eftir að hafa lokið 37 hringjum eða 248 kílómetra!

Aðrar fréttir