Smástundarsýning: Hjartastrengir og vatnsæðar
-
Aðgangur ókeypis
-
16. október - 31. janúar 2025
-
09:00
-
Sjá á korti
Orka streymir um ósýnilegar æðar borgarinnar. Vatn, rafmagn og skólp rennur til okkar og frá og nærir okkur, hlýjar okkur og tengir okkur. Á sýningunni Hjartastrengir og vatnsæðar færð þú að upplifa innviði á nýjan hátt – þar sem hjarta borgarinnar slær í takt við hjarta mannsins.
Samhliða sýningunni gefur Elliðaárstöð út nýtt fræðsluefni sem nefnist Ósýnilegt verður sýnilegt og fjallar það um orku og veitukerfin. Efnið samanstendur af fræðslu á vef, veggspjöldum og þemaheftum.
Það er von okkar að gestir upplifi innviði borgarinnar, orku og veitukerfin á nýjan og skapandi hátt og skemmti sér í leiðinni.
Sýningin er unnin af Margréti Hugadóttur, leiðtoga vísindamiðlunar í Elliðaárstöð og Elísabetu Jónsdóttur, sýningarstjóra Elliðaárstöðvar.
Sýningin opnar þann 16. október kl. 16:30 og stendur til 31. janúar 2026. Frá 17. október er sýningin opin alla virka daga frá kl. 9-16:30.
//
Energy flows through the city’s invisible veins. Water, electricity, and sewage move to and from us, nourishing, warming, and connecting us. In the exhibition Wired for Life, you will experience infrastructure in a whole new way, where the human heart beats in rhythm with the heart of the city at Elliðaárstöð.
Alongside the exhibition, Elliðaárstöð is releasing new educational material called Ósýnilegt verður sýnilegt (The Invisible Becomes Visible), which explores flow of energy through the utility systems. The material includes online educational content, posters, and themed booklets.
We hope visitors will discover the city’s infrastructure, energy, and utility systems in a fresh and creative way—and have fun in the process.
The exhibition is curated by Margrét Hugadóttir, Head of Science Communication at Elliðaárstöð, and Elísabet Jónsdóttir, Exhibition Director at Elliðaárstöð.
The exhibition opens on October 16th at 4:30 PM and runs until January 31st, 2026. From October 17th, the exhibition is open every weekday from 9:00 AM to 4:30 PM