Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

#

Jól í dalnum – 13. desember

Í desember umbreytist Elliðaárstöð í jólastöð. Komið í dalinn og upplifið fallegu jólaljósin, skellið ykkur í ratleikinn Leitin að jólaorkunni, fræðist á vísindasýningunni Hjartastrengir & vatnsæðar í Gestastofunni og fáið ykkur jólakræsingar á Elliða – kaffihúsinu í hjarta dalsins🎅⛄

Sérstök jóladagsskrá verður í Elliðaárstöð alla laugardaga fram að jólum í desember.

Dagskrá 13. desember frá 13:00-16:00

👉 Söngur á aðventu – Borgarkórinn, blandaður kór núverandi og fyrverandi starfsmanna Reykjavíkurborgar, flytur vel valin jólalög á útisvæði Elliðaárstöðvar. Kórstjóri er Aron Axel Cortes kl.13:30
👉 Jólasveinar kíkja í heimsókn í Elliðaárstöð kl. 14:00
👉 Vísindasýningin Hjartastrengir og vatnsæðar í Gestastofunni
👉 Piparkökuföndur á meðan birgðir endast í Gestastofunni
👉 Leitin að jólasveinunum í Rafstöðinni – getur þú fundið alla þrettán jólasveinana í Rafstöðinni og leyst úr orðaflækunni sem þeir hafa búið til? Jólastafir í boði fyrir klára krakka sem geta hjálpað þeim að leysa flækjuna.
👉 Jólamatseðill á Elliða
👉 Jólatrjáasala Hjálparsveitar skáta við Gestastofu Elliðaárstöðvar kl. 10-21

Hlökkum til að sjá ykkur í desember🎄

Aðrir viðburðir