Verum og gerum – Fjölskyldusmiðja
-
Aðgangur ókeypis
-
21. febrúar 2026
-
13:00
-
Sjá á korti
VERKSTÆÐI HUGMYNDASMIÐA Í GERVERINU Í ELLIÐAÁRSTÖÐ
Fjölskyldusmiðja ![]()
Þátttakendur fá tækifæri til að virkja sköpunarkraftinn, efla samvinnu fjölskyldunnar og læra að nota endurnýttan og náttúrulegan efnivið sem við björgum. Við uppvinnum og breytum hugmyndum í hluti með smíðum, leik og tilraunum.
Það er frítt inn á smiðjuna fyrir fjölskylduna og ekki þörf á að skrá sig, bara mæta! Gert er ráð fyrir fullorðnum fylgifiskum með öllum skapandi krökkum.
Hlökkum til að sjá unga hugmyndasmiði![]()
Nokkur atriði sem gott er að hafa í huga á verkstæðinu:
Mætið í fatnaði sem hentar verkstæðisvinnu
Við munum vinna með verkfæri og mikilvægt er að allir fari varlega
Börnin eru á ábyrgð fullorðinna fylgifiska
Verkstæðið er styrkt af VOR Vísindasjóði Orkuveitunnar.
Dagskráin á Verkstæðinu heldur áfram fram að sumri:
21. febrúar kl 13-15 – Verum og gerum
21. mars kl 13-15 – Höfum hátt
23. apríl (sumardagurinn fyrsti) kl 13-15 – Hönnum fuglahús
10. maí (Hönnunarmars) kl 13-15 – Öll í bátana
Næsta sumar verður boðið upp á Meistarabúðir, sumar-námskeið þar sem þátttakendur fá að kafa enn dýpra í heim hugmyndasmiða