Nýverið kom saman fjölbreyttur og áhugasamur hópur í Elliðaárstöð til að ræða loftlags- og umhverfisfræðslu, með sérstakri áherslu á útikennslu og tengsl okkar við náttúruna. Fundurinn sem var kallaður Tengjumst náttúrunni skapaði vettvang fyrir fagfólk til að deila reynslu sinni, hugmyndum og innblæstri úr daglegu starfi.
Reynslumiklir fyrirlesarar fjölluðu um mikilvægi þess að færa kennslu út fyrir veggi skólastofunnar og hvernig náttúran getur verið öflugt kennslurými. Umræður voru lifandi og greinilegt að áhugi á útinámi og náttúrutengingu er mikill meðal þeirra sem starfa við fræðslu barna og ungmenna.
Elliðaárstöð þakkar öllum gestum kærlega fyrir komuna og þátttökuna. Sérstakar þakkir fá þau sem héldu erindi: Silla, Ósk og Hilda hjá Grænfánanum, Stína Bang hjá Miðstöð útivistar og útináms, Guðmundur Finnbogason hjá Þjórsárskóla, Margrét Hugadóttir hjá Elliðaárstöð, Sólrún Harðardóttir sem leiðir vefinn Náttúra Reykjavíkur og Hrafnhildur Sigurðardóttir hjá Sjálandsskóla. Að lokum viljum við færa Þórhildi Fjólu sérstakar þakkir fyrir frumkvæði að þessum dýrmæta og vel heppnaða viðburði.