Ævintýrin lifna við – Fjölskyldugleði við Elliðaárstöð
-
Aðgangur ókeypis
-
23. apríl 2026
-
13:00
-
Sjá á korti
Fögnum saman sumardeginum fyrsta í ævintýralegu umhverfi Elliðaárstöðvar.
Þann 23. apríl, á sumardaginn fyrsta, bjóðum við upp á sannkallaða fjölskyldugleði við Elliðaárstöð þar sem krakkar og fullorðnir á öllum aldri eru hvött til að leika sér og hafa gaman.
Vatni verður hleypt á hinn geysivinsæla Vatnsleikjagarð, kaffihúsið Elliði og Gestastofa Elliðaárstöðvar opna dyr sínar fyrir gestum dalsins, skemmtilegir DJ-tónar munu óma um svæðið og hægt verður að taka þátt í hjóladagskrá Reiðhjólabænda.
Fjölskyldudagskrá Elliðaárstöðvar verður frá 13:00–15:00, samhliða Hjólahátíð Reiðhjólabænda frá 11:00–15:00.
Dagskrá Hjólahátíðar má finna hér
Sumaropnunartími Elliðaárstöðvar frá 23. apríl til 30. september
Gestastofa Elliðaárstöðvar:
miðvikudaga til sunnudaga frá 13:00–16:00
Kaffihúsið Elliði:
þriðjudaga til sunnudaga frá 11:00–17:00
Hlökkum til að sjá ykkur!