Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

#

Lifandi vídjódýr! – Barnamenningarhátíð

Gagnvirk smiðja með Steinunni Eldflaug (dj. flugvél og geimskip) þar sem börn taka þátt í því að búa til dýr sem bregðast við hljóði. Við teiknum dýr, búum til myndir og mynstur sem varpað er á dýrin og sjáum hvernig auður flötur lifnar við með töfrum vídjóvörpunar.

Steinunn hefur fengist við listræna forritun, gagnvirkni, vídjóvörpun, tónlist og myndlist undir listamannsnafninu dj. flugvél og geimskip um áraraðir og hefur mikla reynslu af því að vinna með börnum og ungmennum að listsköpun. Sköpunargleði og tilraunamennska ráða för á þessari smiðju og við hlökkum til að sjá hvað gerist!

Smiðjan verður í Gestastofu Elliðaárstöðvar, Rafstöðvarvegi 14, frá kl.13-15 og er þátttaka ókeypis.

Aðrir viðburðir