Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Frábær aðsókn í skólafræðslu Elliðaárstöðvar – uppbókað fram að jólum

9. október 2023
Tilraun í rafstöð

Starfsfólk fræðsluteymis Elliðaárstöðvar tekur á móti nemendahópum í skemmtilega fræðslu um orku og vísindi. Áhersla er lögð á að gera ósýnilegt sýnilegt og sýna hvernig borgin okkar virkar á bak við tjöldin.

Leiðarljós okkar í fræðslu er STEAM menntun en hún samþættir vísindi, tækni, verkfræði, listir og stærðfræði.

Fullbókað fram að jólum

Við bjóðum upp á skólaheimsóknir alla mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga. Nú er orðið uppbókað fram að jólum en þú getur skráð þig á biðlista með því að hafa samband við ellidaarstod(hjá)ellidaarstod.is.

Fræðsluframboð vorsins kynnt í byrjun janúar

Fræðsludagskrá Elliðaárstöðvar fyrir vorönn 2024 verður kynnt í byrjun janúar hér á vefnum og á samfélagsmiðlum. Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum!

Aðrar fréttir