Höfuðstöðin og Elliðaárstöð tóku sig saman og skipulögðu grímusmiðju og draugagöngu í tilefni hrekkjavökunnar sem er haldin hátíðleg ár hvert þann 31. október.
Dagskráin byrjaði í Höfuðstöðinni kl 16 þar sem gestir gátu keypt sér grímu til að skreyta og úr urðu alls konar fígúrur. Krakkarnir voru spenntir fyrir grímugerðinni og voru sum að gera grímu fyrir hrekkjavökubúninginn sinn eða til að nota á áramótunum.
Úti var milt og þegar kom að draugagöngunni kl 17:30 var sólin á leið sinni að setjast og gengið var í ljósaskiptunum.
Þjóðfræðingurinn og starfsmaður Elliðaárstöðvar, Ragnhildur Sara, leiddi mannskapinn niður frá Höfuðstöð til Elliðaárstöðvar.
Mikla dulúð lagði yfir hópinn þegar lagt var af stað. Eftir komu fyrsta draugs göngunnar var aðalspurningin „hvenær kemur næsti draugur??“
Við hittum á Skuplu, Móra og Skottu, allt fylgjudrauga sem eiga það til að vera hrekkjóttir og geta fylgt mörgum ættliðum. Uppvakningur var vakinn upp, hann sigraður í puttastríði og fenginn til að fylgja okkur í göngunni. Að lokum beið okkar beinagrind sem sat í makindum sínum án allra áhyggja enda afturganga sem hafði útkljáð sín mál hér á jörðu.
Að göngu lokinni tók við frjálst draugaflæði í Elliðaárstöð þar sem búið var að umbreyta rafstöðinni í draugastöð. Skrúðgarðurinn var einstaklega hræðilegur með köngulær og drauga á sveimi. Á Bístró tók þátt í gleðinni og bauð upp á graskerssúpu og ræs krípís kökur sem vöktu lukku. Gestir voru mjög ánægðir með þennan skemmtilega viðburð sem stóðst allar væntingar og vel það.
Sjáðu drauga og hrekkjavökupúka í frétt RÚV
Við þökkum fyrir okkur og hlökkum til næsta árs, hver veit hvaða draugar verða þá…