Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Forsetahjónin boðin velkomin!

24. nóvember 2023

Forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid komu í opinbera heimsókn til Reykjavíkur fimmtudaginn, 23. nóvember. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og eiginkona hans, Arna Dögg Einarsdóttir fylgdu þeim.

Var heimsóknin nýtt í að kynna sér starfsemi borgarinnar með sérstaka áherslu á framþróun Reykjavíkurborgar og nýja samfélagsgerð.

Varð starfsemi Orkuveitunnar í Elliðaárstöð fyrir valinu sem einn af áfangastöðum þeirra. Elliðaárstöð er nýr áfangastaður í hjarta borgarinnar þar sem gömul hús fá nýtt hlutverk. Hér koma gestir saman til að fræðast, upplifa, skapa og njóta náttúrunnar. 

Það var hugguleg stemning á Veitutorgi þar sem starfsmenn Orkuveitunnar og dótturfyrirtæki gátu hlýjað sér við opinn eld meðan beðið var eftir heiðursgestunum. 

Birna Bragadóttir, forstöðukona Elliðaárstöðvar og Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur tóku á móti forsetahjónunum fyrir hönd starfsfólks OR og leiddu þau hópinn í göngu um svæðið.

 

Forsetinn og föruneyti gengu um svæðið og fengu kynningar inni í gömlu rafstöðinni, á Heimili Veitna og á Á Bístró þar sem starfsfólk sagði frá fjölbreyttri starfsemi samstæðunnar.

Að kynningu lokinni tók við tónlistaratriði frá jólatónleikum starfsmanna yfir dýrindis kakó og kleinum frá Á Bístró.

Að endingu voru forsetahjónum og borgarstjóra og frú færðar gjafir frá samstæðunni. 

Við þökkum öllum sem mættu fyrir þessa skemmtilegu heimsókn!

Frétt stöðvar 2 um heimsóknina

Aðrar fréttir