Litlu jólin í Elliðaárstöð | Jóla pop-up búð
- Aðgangur ókeypis
- 6. desember - 8. desember 2023
- 12:00
- Sjá á korti
Dagana 6. – 8. desember opnum við í Elliðaárstöð dyrnar að gömlu rafstöðinni í Elliðaárdal frá kl.12 til 16 og leyfum gestum og gangandi að kíkja inn í þessa sögufrægu byggingu og anda að sér ilm jólanna.
Jóla pop-up búð verður inn á verkstæði rafstöðvarinnar, þar sem ný vörulína Elliðaárstöðvar verður til sölu og sýnis.
Húsin á svæðinu verða skreytt fallegum jólaljósum og kaffihúsið Á Bístró mun bjóða upp á sérstakan jólamatseðil:
❅ dönsk purusteik og heimagert rauðkál
❅ smörrebröd með leverpostej og beikoni
❅ reykt síld frá Sólskeri með dilli og kartöflum
❅ rís á la mande
❅ Lúsíubollur
❅ heitt súkkulaði og jólaglögg
❅ dönsk purusteik og heimagert rauðkál
❅ smörrebröd með leverpostej og beikoni
❅ reykt síld frá Sólskeri með dilli og kartöflum
❅ rís á la mande
❅ Lúsíubollur
❅ heitt súkkulaði og jólaglögg