Uppljómun og Rafleiðsla í Elliðaárstöð
-
Aðgangur ókeypis
-
2. febrúar 2024
-
18:00
-
Sjá á korti
Elliðaárstöð tekur þátt í fyrsta sinn í Vetrarhátíð Reykjavíkurborgar í samstarfi við Veitur. Boðið verður upp á rafmagnaða upplifun fyrir öll skilningarvitin á Safnanótt föstudaginn 2. febrúar frá 18 til 21.
Uppljómun
Útilistaverkið Uppljómun eftir þau Litten Nystrøm og Harald Karlsson fær að prýða hinn fagra skrúðgarð Elliðaárstöðvar í tvær vikur, frá 2. febrúar til 18. febrúar. Verkið sem var fyrst sýnt á Vetrarhátíð 2022 sem svar við ósk borgarbúa um aukna birtu í skammdeginu.
Litten Nystrøm og Haraldur Karlsson eru starfandi listafólk í Reykjavík og eru með vinnustofu í Laugarnesi sem þau kalla MAP. Þau hafa áður tekið þátt í Vetrarhátíð með verkinu Interference sem var varpað á Hallgrímskirkju árið 2021.
Rafleiðsla
Í vélarsal gömlu rafstöðvarinnar verður boðið upp á Rafleiðslu sem er einstakur viðburður sem gengur út á samtal í gegnum djúpa hlustun (e. deep listening) og stillta hugleiðslu (e. tuning meditation). Verkið er einskonar dans á milli fyrirfram samdra tónsmíða og spuna. Tilgangur með djúpri hlustun í tónlistinni er líka hvatning til að vekja fólk til umhugsunar um mikilvægi djúprar hlustunar í daglegu lífi, bæði við sjálfið og hvort annað.
Tónlistarfólkið sem kemur fram er Hekla (Hekla Magnúsdóttir), Osmē (Benedikt Reynisson, Helgi Örn Pétursson og Þórður Bjarki Arnarson), Sigrún (Sigrún Jónsdóttir) og Sk-Ar & Jesper Pedersen (Skúli Arason og Jesper Pedersen). Ljósainnsetning er í höndum nýmiðlalistamannsins Leó Stefánssonar.
Rafleiðsla er styrkt af Tónlistarborginni Reykjavík og Menningarsjóð FÍH.
Meira um Rafleiðslu hér
Á Bístró
Veitingastaðurinn Á Bístró mun framlengja opnunartíma sinn á Safnanótt, föstudaginn 3. febrúar, til 21:00 og tekur vel á móti gestum hátíðarinnar.
Veitur eru aðalbakhjarl Vetrahátíðar og styrkir uppsetningu á verkinu Uppljómun í Elliðaárstöð.
Viðburðurinn er fyrir alla aldurshópa og er aðgangur ókeypis.
Hlökkum til að sjá ykkur í Elliðaárstöð!