Skuggalegt skuggaleikhús
Leiktu þér með ljós og skugga á Hrekkjavöku.
Hrekkjavökuleikir Elliðaárstöðvar flétta saman tilraunir með rafmagn, ljós og skugga á skapandi hátt.
Leikum okkur með ljós og skugga. Segðu sögu með skuggamyndum. Sögu um allt á milli himins og jarðar. Kannski er þetta hroðalega skuggaleg saga á hrekkjavöku eða hálfskuggaleg haust saga. Þú ræður ferðinni. Gefðu ímyndunaraflinu lausan tauminn.
Þú þarft
Límband
Skæri
Vasaljós
Pinna, t.d. ísspýtur, grillpinna, gaffla.
Pappír (þú getur prentað út form frá Elliðaárstöð eða gert þínar eigin sögupersónur). Tilvalið er að nota pappa utan af morgunkorni.
Áttu hálfgagnsætt sælgætisbréf? eða litaðan plastpoka undan kartöflum? Prófaðu að setja svoleiðis í augun á skuggaverunum!
Form – sögupersónur
Hvernig
Klipptu út myndir (t.d. formin sem fylgja) límdu með límbandi á t.d. ísspýtur, grillpinna eða gaffal.
Slökktu ljósin í herberginu og veldu þér bakgrunn. Notaðu lampa eða vasaljós til að lýsa á vegginn. Þú getur stækkað og minnkað sögupersónurnar með því að færa þær nær eða fjær ljósgjafanum.
Sagan
Hver er sögupersónan? Hvar gerist sagan? Hvað gerist sem lætur söguna hefjast? Hvernig líður sögupersónunni? Hvernig var veðrið? Var bjart eða dimmt? Hvað gerist í sögunni? Hvernig lýkur sögunni? Hvað heitir sagan?
Vantar þig hugmyndir? Svona getur þú hafið söguna þína:
„Ljósin slökknuðu, það heyrðist þrusk í trjánum, allt í einu birtist…“
„ Allt í einu skelltist hurðin, vindurinn gnauðaði, úr einu horni heyrðist hljóð…“
Sýning
Nú er komið að því að bjóða áhorfendum á sýninguna. Góða skemmtun!
Aðrar útfærslur
- Settu skuggaformin í taupoka og dragðu eitt form í einu. Búðu til söguna á staðnum og láttu formin ráða ferðinni.
- Settu skuggaformin í taupoka og fáðu áhorfendur til að draga form og búa til söguna með þér.