Nemendur eru velkomnir í Elliðaárstöð. Við bjóðum upp á leiðsögn um Elliðaárstöð og fræðum gesti um þær breytingar sem áttu sér stað í kjölfar rafvæðingar Reykjavíkur. Gengið er um útisvæðið þar sem rætt er um sögu svæðisins og svo endar heimsóknin inni í Rafstöðinni þar sem sjá má hundrað ára gamlar vélar.
Leiðsagnir taka um klukkustund.
Fræðsluheimsókn í Elliðaárstöð
Hér er hægt að senda inn beiðni um heimsókn fyrir framhalds- eða háskóla hópa. Við svörum beiðnum eins fljótt og auðið er og festum dagssetningu miðað við óskir í beiðni. Orkuveitan og Elliðaárstöð býður skólum í heimsókn gjaldfrjálst.
"*" indicates required fields