Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Iðnir og tækni

9. desember 2021
Valgreinin Iðnir og tækni veitir ungmennum tækifæri til að kynnast iðn og tæknigreinum.
Iðnir og tækni er samstarfsverkefni sem OR samstæðan hefur um árabil í samstarfi við Árbæjarskóla boðið upp á valáfanga fyrir 10 bekk skólans. Markmið áfangans er m.a. að gefa nemendum kost á því að kynnast fjölbreytileika iðn- og tæknistarfa, breyta staðalmyndum iðngreina og fjölga konum í iðn- og tæknistörfum. Elliðaárstöð hefur umsjón með verkefninu en það er unnið í samstarfi við starfsfólk Veitna, OR, ON, Ljósleiðarans og Carb-fix.
Nýverið var haldin uppskeruhátið í Elliðaárstöð þar sem nemendur kynntu verkefni sín fyrir foreldurm og kennurum.

Aðrar fréttir