Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Ævintýrin lifnuðu við á sumardaginn fyrsta

24. apríl 2026

Ævintýrin lifnuðu heldur betur við í Elliðaárstöð í gær, sumardaginn fyrsta, þegar tæplega 1000 manns mættu á svæðið til að bjóða sumarið velkomið. Stór hluti gesta mættu á hjólum, enda Hjólahátíð Reiðhjólabænda haldin samhliða það setti skemmtilegan svip á svæðið.

Stemningin var létt og leikandi þar sem gestir á öllum aldri nutu dagsins. Vatni var hleypt á Vatnsleikjagarðinn eftir veturinn við mikla gleði barna sem nutu þess að sulla og leika sér. DJ Mellí hélt uppi stuðinu í Skrúðgarðinum þar sem fólk slakaði á eða rólaði sér í hengirúmunum vinsælu. Fjölskyldur spreyttu sig á sandpokakasti á meðan börn á hjólum prófuðu hjólalimbó og þrautabrautir Reiðhjólabænda. Fjölskyldusmiðja Hugmyndasmiða í Gestastofunni vakti einnig mikla lukku þar sem fjöldinn allur af fjölbreyttum fuglahúsum voru byggð.

Kaffihúsið Elliði og Gestastofa Elliðaárstöðvar opnuðu dyr sínar fyrir sumarið en það verður opið miðvikudag til sunnudags kl. 13-16 í Gestastofunni í allt sumar. Ljóst er að Elliðaárstöð er lifandi áfangastaður orku og náttúru þar sem fjölskyldur og útivistarfólk getur komið til að njóta. Sumarið lofar sannarlega góðu!

Aðrar fréttir