Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Auðlindahringir hjólaðir í annað sinn

12. júlí 2023

Í vor tóku um 240 manns þátt í hinum geysivinsælu Auðlindahringjum sem haldnir voru í  annað sinn á vegum Elliðaárstöðvar. Í ár voru hjólaðir 5 hringir; Fráveituhringurinn, Rafveituhringurinn, Hitaveituhringurinn, Vatnsveituhringurinn og Jarðhitahringurinn, samtals yfir 120 km.

Auðlindahringir Elliðaárstöðvar er hjólaleiðsögn þar sem auðlindasérfræðingar OR samstæðunnar leiða þátttakendur um auðlindir og innviði höfuðborgarsvæðisins. Þátttakendur fá tækifæri til að fræðast um uppruna vatnsins, sögu vatnsveitunnar og mikilvægi hreins neysluvatns, skoða lykil mannvirki í flutning og dreifingu rafmagns, hjóla um hið magnaða jarðhitasvæði Hellisheiðavirkjunar og vatnstökusvæði Reykvíkinga í Heiðmörk, svo fátt eitt sé nefnt.

Birna Bragadóttir forstöðukona Elliðaárstöðvar tekur viðtal við þau Sædísi Ólafsdóttur, sérfræðingi í jarðvísindum og Hlöðver Þorgeirsson, sérfræðingi í fráveitu í upphaf fyrsta Auðlindahring ársins.

Auðlindahringir 2023

Þökkum öllum þeim sem tóku þátt Auðlindahringjum Elliðaárstöðvar og hlökkum til að hjóla saman og fræðast að ári liðnu.

Aðrar fréttir