Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Elliðaárstöð tilnefnd til tveggja hönnunarverðlauna

31. október 2025
Svæðið hefur svo sannarlega fengið nýtt hlutverk en í stað þess að virkja árnar til rafmagnsframleiðslu er nú lögð áhersla á að virkja fólk og hugvit.

Gömlum og fallegum byggingum hefur verið gefið nýtt hlutverk og svæðið sem áður var iðnaðarsvæði er nú orðið aðgengilegt gestum býður nú upp á þjónustu, vísindamiðlun, fjölbreytta viðburði og skemmtilegt mannlíf.

Tilnefning til Mies van der Rohe verðlaunanna í arkitektúr 2026

Mies van der Rohe verðlaunin eru ein virtustu byggingarlistarverðlaun í heimi. Þau voru sett á stofn árið 1987 af Evrópusambandinu og Stofnun Mies van der Rohe í Barcelona og er ætlað að vekja athygli á því sem best er gert í evrópskri byggingarlist og koma allar byggingar sem er við tveimur árum fyrir afhendingu til greina.

Elliðaárstöð hefur verið tilnefnd til hinna virtu Mies van der Rohe verðlaunanna í arkitektúr 2026.Verðlaunaafhendingin fer fram í maí 2026.

Tilnefning til Hönnunarverðlauna Íslands 2025 í flokknum staður

Hönnunarverðlaun Íslands varpa ljósi á mikilvægi og gæði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi með áherslu á áhrif þeirra á lífsgæði, verðmætasköpun og sjálfbærni fyrir samfélagið allt

Elliðaárstöð er tilnefnd til hönnunarverðlauna Íslands 2025. Verðlaunaafhendingin fer fram fimmtudaginn 6. nóvember.

Fjölmargir aðilar hafa komið að verkefninu og eiga ríkan þátt í því að gera Elliðaárstöð að þeim aðlaðandi áfangastað orku og náttúru sem hann er orðin. Hönnunarteymið Terta og Landslag ásamt fjölmörgum fleirum sáu um hönnun svæðisins.

Aðrar fréttir