Elliðaárstöð Orkuveitunnar í Elliðaárdal hefur hlotið fegrunarviðurkenningu Reykjavíkurborgar fyrir árið 2023 í flokknum stofnana- og þjónustulóðir. í umsögn dómnefndar segir m.a. að svæðið höfði til allra aldurshópa og kaffihús á svæðinu muni þjóna öllum gestum Elliðaárdals. „Mikil viðurkenning, þrátt fyrir að eiga töluvert í land að vera að fullu tilbúin,“ segir forstöðukona Elliðaárstöðvar.
Það var fyrir rúmum 100 árum að Elliðaárstöð var gangsett í fyrsta sinn og sannkölluð bylting átti sér stað í lífsgæðum Reykvíkinga. Rafmagnsframleiðslu var síðan hætt árið 2014 og 5 árum síðar var haldin hugsmyndasamkeppni um Elliðaárstöð, sögu- og tæknisýningu á rafstöðvartorfunni. Hönnunarhópurinn Terta bar sigur úr bítum og hefur verið unnið að því að breyta svæðinu í áfangastað allar götur síðan.
Í tilnefningu dómnefndar segir:
„Verkefnið Elliðaárstöð – útisvæði Elliðaárstöðvar fær viðurkenningu sem stofnana- og þjónustulóð. Það er metnaðarfullt og gott fordæmi þar sem fyrirtæki gefur til samfélagsins. Grasflöt er breytt í fjölbreytt og skemmtilegt leik- og fræðslusvæði, og bílastæði er breytt í torgsvæði. Eldri gróður er varðveittur og vel viðhaldið en garðurinn við gömlu Rafstöðina hefur mikið verndargildi vegna aldurs og fagurs umhverfis. Mikið er lagt upp úr náttúrulegum efnivið. Svæðið höfðar til allra aldurshópa og kaffihús á svæðinu mun þjóna öllum gestum Elliðaárdals.“
Birna Bragadóttir forstöðukona Elliðaárstöðvar tók við viðurkenningunni úr höndum borgarstjóra við hátíðlega athöfn í Höfða. Af því tilefni sagði Birna:
„Það gefur okkur byr undir báða vængi að áfangastaðurinn sem við erum að skapa skuli fá slíka viðurkenningu, þrátt fyrir að eiga töluvert í land að vera að fullu tilbúin. Það er gaman að sjá að sú sýn OR að gefa til baka eftir 100 ára orkunýtingu í dalnum, segja sögu orkumála sem er samofin framfarasögu borgarinnar, gefa húsakostinum nýtt líf og virkja nú fólk, hugvit og nýsköpun sé eftirtektarverð.“
Þá þakkaði Birna þeim fjölmörgu aðilum sem hafa komið að því að byggja upp áfangastaðinn í dalnum sem svo sannarlega hefur stimplað sig enda viðburðir þar afar vel sóttir.
Hægt er að kynna sér Elliðaárstöð frekar hér.