Mikil gleði og eftirvænting einkenndi stemninguna við Elliðaárnar í byrjun sumars. Elliðaárstöð, Orkuveitan og Stangveiðifélag Reykjavíkur (SVFR) standa árlega fyrir vorveiði barna með sérþarfir. Þetta árið tóku einstaklingar úr félagsstarfi fatlaðra í Hinu húsinu, Ás styrktarfélagi og Einstökum börnum þátt í veiðinni. Aldursbilið var breytt, sumir voru að stíga sín fyrstu skref í veiðinni á meðan aðrir voru reynslunni ríkari og höfðu tekið þátt áður.
„Það er ekki hægt að hugsa sér betri leið til að hefja veiði í ánum,“ segir Ásgeir Helgason, umsjónamaður fasteigna í Elliðaárstöð. Undanfarin ár hefur hann séð um framkvæmd veiðinnar og séð um veiðiaðstoð á bakkanum ásamt Allan Ragnarssyni, rafvirkja hjá Orku náttúrunnar.
Í ár tóku 58 einstaklingar með sérþarfir þátt í veiðinni og hefðu þau verið fleiri ef veðrið hefði ekki sett strik í reikninginn hjá fyrsta hópnum. Afar fágætt er að geta stundað laxveiðar í miðri höfuðborg og því mætti segja að þessi hefð sé í raun einstök á heimsvísu.
Orkuveitan og SVFR hafa boðið upp á vorveiðina frá árinu 2009. Útveguð eru veiðarfæri og nesti, ásamt því að boðið er upp á leiðsögn í umsjá starfsfólks Orkuveitunnar. Veiðin í ár gekk vel og voru mörg sem lönduðu fiski undir góðri leiðsögn veiðisérfræðinganna. Veitt er í Höfuðhyl og niður að Ármótum. Áhersla er lögð á skemmtun og að veiðin henti öllum, því var annað hvort veitt við árbakkann eða ofan á brúnni þar sem aðgengi er betra.
Að sjálfsögðu voru teknar myndir af aflanum en að lokinni myndatöku var fisknum ýmist sleppt aftur í ána eða hann tekinn heim í soðið. Adrían Breki Hlynsson var einn af veiðimönnunum í ár. Hann var sáttur með aflann en hann landaði Urriða. „Hann er svona 300 grömm.” Hann taldi þetta þó ekki vera eins mikið og hann hafði áður veitt. „Ég var hérna í fyrra og veiddi þá aðeins stærri fisk heldur en þetta.”
Þau sem tóku með sér fisk heim voru staðföst á því að þetta væri kvöldmaturinn í stað föstudagspizzunnar.