Forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid komu í opinbera heimsókn til Reykjavíkur fimmtudaginn, 23. nóvember. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og eiginkona hans, Arna Dögg Einarsdóttir fylgdu þeim.
Var heimsóknin nýtt í að kynna sér starfsemi borgarinnar með sérstaka áherslu á framþróun Reykjavíkurborgar og nýja samfélagsgerð.
Varð starfsemi Orkuveitunnar í Elliðaárstöð fyrir valinu sem einn af áfangastöðum þeirra. Elliðaárstöð er nýr áfangastaður í hjarta borgarinnar þar sem gömul hús fá nýtt hlutverk. Hér koma gestir saman til að fræðast, upplifa, skapa og njóta náttúrunnar.
Birna Bragadóttir, forstöðukona Elliðaárstöðvar og Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur tóku á móti forsetahjónunum fyrir hönd starfsfólks OR og leiddu þau hópinn í göngu um svæðið.
Forsetinn og föruneyti gengu um svæðið og fengu kynningar inni í gömlu rafstöðinni, á Heimili Veitna og á Á Bístró þar sem starfsfólk sagði frá fjölbreyttri starfsemi samstæðunnar.
Að kynningu lokinni tók við tónlistaratriði frá jólatónleikum starfsmanna yfir dýrindis kakó og kleinum frá Á Bístró.
Að endingu voru forsetahjónum og borgarstjóra og frú færðar gjafir frá samstæðunni.
Við þökkum öllum sem mættu fyrir þessa skemmtilegu heimsókn!
Frétt stöðvar 2 um heimsóknina