Í Morgunblaðinu birtist jákvæð og skemmtileg frétt um gufuborinn Dofra sem nú stendur við Elliðárstöð. Járnrisinn Dofri er farinn að vekja athygli fólks enda ber turn hans hátt við himin og sést víða að úr austurborginni, eins og segir í fréttinni. Í kuldatíðinni sem nú stendur yfir ber að þakka fyrir þá tækiþróun sem varð í jarðhitaborun með tilkomu Dofra og þeirra mikilvægu lífsgæða sem hitaveitan gefur.
