Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Heilsusamleg og hamingjurík hjólagleði

20. ágúst 2024
Mörg biðu spennt eftir að komast að í hjólaþrautabrautinni.

Hjólagleði, samstarfsverkefni Elliðaárstöðvar og Reiðhjólabænda, var haldin laugardaginn, 17. ágúst síðastliðinn. Tilgangurinn var að vekja athygli á hjólreiðum, bæði sem samgöngumáta en einnig sem afþreyingu og heilsubót. Það hefur nefnilega verið sannað að þau sem hjóla reglulega lifa lengur og eru ánægðari á ferðum sínum en þau sem nota aðra fararmáta. Hreyfingin eykur einnig hamingu.

Boðið var upp á hjólaþrautabraut sem fólst í sér að hjóla eftir örvum sem hlykkjuðust um gangstéttina við Veitutorg. Þar voru ýmsar áskoranir, meðal annars að hjóla upp á spítu og sækja bolta af keilu sem hitta átti ofan í fötu. Einnig var boðið upp á annarskonar þrautabraut þar sem vatnsblöðrur héngu úr snæri og þurfti að sveigja framhjá þeim til að komast hjá því að sprengja þær. Krakkarnir sáu sér leik á borði og fóru í vatnsblöðrustríð með afganginn af blöðrunum sem bjó til afar skemmtilega stemningu. Pop-up hjólaverkstæði var einnig á staðnum þar sem Birgir Fannar Birgisson, formaður Reiðhjólabænda stóð vaktina og bauð upp á ástandsskoðun.

Gaman var að sjá hversu mörg lögðu leið sína í Elliðaárstöð á hjólum en fjölmargir göngu- og hjólastígar liggja að Elliðaárstöð og því tilvalinn samgöngumáti.

Aðrar fréttir